breyting á deiliskipulagi
Lyngháls 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 759
24. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Arkís arkitekta ehf. dags. 10. janúar 2020 ásamt bréfi dags. 9. janúar 2020 um breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Lyngháls sem felst í að skilgreina byggingarreit norðan við húsið. Gert er ráð fyrir að byggingarreitur til suðurs geti færst nær núverandi húsi samhliða þessari breytingu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111046 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020078