(fsp) skipting lóðar
Hverfisgata 73
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 699
21. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsngu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 28. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðarinnar nr. 73 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að hækka húsið og stækka til norðurs, setja kvisti á norður- og suðurhlið byggingar og svalir á 1. hæð og rishæð, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf. dags. 22. maí 2018. Einnig liggur fyrir samþykki meðlóðarhafa dags. 29. júní 2018. Lagður fram tölvupóstur Þormóðs Sveinssonar dags. 7. september 2018 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti. Tillaga var auglýst frá 27. júlí 2018 til og með 13. september 218. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

101 Reykjavík
Landnúmer: 101106 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022392