starfsleyfi fyrir Kínasafn Unnar
Njálsgata 33 og 33A
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 461
27. september, 2013
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju umsókn PK-Arkitekta ehf. dags. 7. mars 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits 1, 1.190.0, vegna lóðarinnar nr. 33B við Njálsgötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit samkvæmt uppdr. PK-Arkitekta ehf. dags. 7. mars 2013, breyttur 24. júní 2013. Tillagan var grenndarkynnt frá 29. apríl til og með 29. maí 2013. Athugasemdir og ábendingar bárust. Guðný Sveinbjörnsdóttir dags. 6. maí 2013, Hörður Torfasonar f.h. húsfélagsins Njálsgötu 35 dags. 7. maí 213, Ásta Stefánsdóttir dags. 17. maí 2013 og íbúar Grettisgötu 34 dags. 25. maí 2013.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna að nýju framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Njálsgötu 31, 31a , 33, 33a. 35, 35a, og að Grettisgötu 32, 32b, 34, 36 og 36b. Í grenndarkynningu verður ítrekað að fyrri athugasemdir gildi en ef hagsmunaaðilar vilji breyta eða afturkalla fyrri athugasemdir er bent á að senda inn nýja.