breyting á deiliskipulagi
Bólstaðarhlíð 20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 767
27. mars, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 var lögð fram umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags. 12. febrúar 2020 ásamt bréfi dags. 12. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 20 við Bólstaðarhlíð, Ísaksskóli. Í breytingunni felst að skilgreina byggingarreit fyrir battavöll á lóð sem er 20 x 13 metrar ásamt því að hækka núverandi girðingu á auðausturhorni lóðar, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð ehf. dags. 12. febrúar 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Skaftahlíð 24, 25 og 26 og Bólstaðarhlíð 26.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103628 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008421