breyting á deiliskipulagi
Blikastaðavegur 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 434
8. mars, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Arkís dags. 16. maí 2012 ásamt uppdrætti dags. 20. apríl 2012 um breytingu á deiliskipulagi að Blikastaðavegi 2-8. Breytingin felst í því að lóðin verði skilgreind sem verslunar, þjónustu og athafnasvæði og afmarkaðir verða 3 nýir byggingareitir á lóðinni. Tillagan var auglýst frá 21. janúar til og með 4. mars 2013. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar