breyting á deiliskipulagi
Blikastaðavegur 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 517
20. nóvember, 2014
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. október 2014 var lögð fram umsókn Korputorgs ehf. dags. 27. október 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2-8 við Blikastaðaveg. Í breytingunni felst að afmarkaður er byggingarreitur fyrir sjálfsafgreiðslu eldsneytisstöð á lóðinni, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. Einnig er lögð fram greinargerð Arkís arkitekta ehf. dags. 9. október 2014 og yfirlýsing Davíðs Freys Albertssonar f.h. Korputorgs ehf. dags. 30. október 2014. Umsókninni var frestað og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.