breyting á deiliskipulagi
Blikastaðavegur 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 662
15. desember, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Arkís arkitekta ehf. f.h. Korputorgs ehf. mótt. 20. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 2-8 við Blikastaðaveg. Í breytingunni felst að notkunarskilgreining byggingarreita innan lóðar breytist. Byggingarreitir sem áður voru skilgreindir fyrir vara aflsstöðvar verði skilgreindir fyrir netþjónabú og vara aflsstöðvar, samkvæmt uppdrætti Arkís arkitekta ehf. dags. 16. nóvember 2017.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 , sbr. 12.. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.