breyting á deiliskipulagi
Blikastaðavegur 2-8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 666
26. janúar, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. janúar 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í bili A-B -C og p svæði 1 milli mátlína 1-6 þar sem verslunar- og lagerhúsnæði er breytt í brauð- og kexverksmiðju, milligólf stækkað og viðbyggingu bætt við innan ytri byggingareits sunnan megin, korn- og hveitisílóum komið fyrir við vesturgafl, koma fyrir glugga á norðurhlið og flóttastiga bætt við á hús á lóð nr. 2 - 8 við Blikastaðaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2018.
Greinargerð hljóðvistar dags. 20. desember 2017, bréf hönnuðar dags. 22. desember 2017 og umsögn brunahönnuðar dags. 18. desember 2017 fylgir erindi. Stækkun viðbygging: 457,0 ferm., 4.590,6 rúmm. Stækkun milliloft: 2.010,0 ferm. Samtals stækkun: 2.467,0 ferm., 4.590,6 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2018.
Gera þarf breytingu á deiliskipulagi.