(fsp) rekstur gististaðar í flokki II
Skólavörðustígur 40
Síðast Synjað á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 409
24. ágúst, 2012
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 17. ágúst 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2012 þar sem sótt er um endurnýjun á erindi BN041848 þar sem veitt var leyfi til að rífa tvö eldri hús og byggja í þeirra stað steinsteypt íbúðar- og verslunarhús, fjórar hæðir og kjallara, fimm íbúðir, tvær verslanir og veitingastað á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Jafnframt er erindi BN041848 fellt úr gildi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. ágúst 2010 fylgdi hinu upprunalega erindi (BN041848) ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. ágúst 2010.Einnig fylgdi umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 5. ágúst og Húsafriðunarnefndar dags. 29. júlí 2010.
Stærð niðurrifs: Mhl. 01 fastanr. 200-6095, merkt 0101 íbúð: 87,2 ferm. Mhl. 02 fastanr. 200-6096 merkt 0101 geymsla 10,1 ferm. Mhl. 03 fastanr. 200-697 merkt 0101 bílskúr 21,6 ferm.Niðurrif samtals: 118,7 ferm.
Stærð nýbyggingar: Kjallari, geymslur 203,1 ferm., 1. hæð, verslun og veitingahús 187,8 ferm., 2. hæð, íbúðir 182,7 ferm., 3. hæð, íbúðir 179,9 ferm., 4. hæð, íbúðir 110,2 ferm.A-rými samtals: 863,7 ferm., 2.665,4 rúmm.B-rými á 1. hæð: 22,3 ferm.
Gjald kr. 8.500 + (sjá erindi 41848)
Svar

Ekki er hægt að afgreiða erindið þar sem beðið er úrskurðar æðra stjórnvalds í kærumáli innan þessa reits, Lokastígsreits nr.4

Landnúmer: 101794 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017703