Breytt skráning - efri hæð
Skipholt 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Helga Más Hallgrímssonar dags. 7. september 2021 um breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 21 við Skipholt. Í breytingunni felst að heimilt verður að byggja 4-5 hæðir og 6 hæðir á horni byggingar, gert verði ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæðum, heimilt verði að hafa íbúðir á efri hæðum, byggingarreitur jarðhæðar stækkar, heimilt verður að vera með sameiginlega þakgarða fyrir íbúa ofan á fjórðu og fimmtu hæð, bílastæðum á lóð fækkar og fjöldi hjólastæða verður í samræmi við reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík, samkvæmt uppdr. Arkþings - Nordic ehf. dags. 7. september 2021.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103426 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016938