Breytt skráning - efri hæð
Skipholt 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 676
13. apríl, 2018
Frestað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. nóvember 2017 var lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar f.h. Krókháls 10 ehf. mótt. 13. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar nr. 21 við Skipholt. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn, bæta einni hæð ofaná núverandi byggingar og koma fyrir léttum svölum, stiga og lyftuhúsi í innporti. Verslunarhúsnæði verður á jarðhæð og 23 íbúðir á efri hæðum, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts ódags. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju, ásamt bréfi skrifstofu sviðssjóra, dags. 13. apríl 2018.
Svar

Frestað

105 Reykjavík
Landnúmer: 103426 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016938