Breytt skráning - efri hæð
Skipholt 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 682
25. maí, 2018
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2018 var lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar f.h. Krókháls 10 ehf. mótt. 13. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar nr. 21 við Skipholt. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn, bæta einni hæð ofaná núverandi byggingar og koma fyrir léttum svölum, stiga og lyftuhúsi í innporti. Verslunarhúsnæði verður á jarðhæð og 23 íbúðir á efri hæðum, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts ódags. Einnig er lagt fram bréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 13. apríl 2018. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Erindið fellt niður sbr. bréf skrifsstofu sviðsstjóra dags. 13. apríl 2018.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103426 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016938