Ný viðbygging - stúdentaíbúðir/hótel og samkomusalur
Háskóli Íslands, Hringbraut 29
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 747
18. október, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. september 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. september 2019 þar sem sótt er um leyfi fyrir steyptri viðbyggingu við Gamla Garð sem í verða 69 einstaklingsherbergi/hótelherbergi og samkomusalur fyrir 65 manns, auk þess verða sameiginleg eldhús og geymslur í húsi á lóð númer 29-31 við Hringbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 15. apríl 2019, greinagerð hönnuðar um aðgengi dags. júlí 2019, greinagerð Trivium nr. I vegna hljóðvistar dags. júní 2019, brunahönnun Mannvit dags. 10. september 2019. Stærð nýbyggingar: 3.309,7 ferm., 11.217,5 rúmm.
Einnig fylgir greinagerð hönnuðar um algilda hönnun dags. 26. september 2019, Mannvit brunahönnun dags. 30. september 2019, bréf hönnuðar um lýsingu á starfsleyfisskyldri starfsemi dags. 28. september 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019.