Ný viðbygging - stúdentaíbúðir/hótel og samkomusalur
Háskóli Íslands, Hringbraut 29
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 738
9. ágúst, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júní 2019 var að lokinni auglýsingu lögð fram að nýju umsókn Andrúms arkitekta ehf. dags. 21. febrúar 2019 ásamt bréfi dags. 20. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, austan Suðurgötu, vegna lóðanna nr. 41-43 við Suðurgötu og 29 og 31 við Hringbraut. Í breytingunni felst að fjölga stúdentaíbúðum á háskólasvæðinu með stækkun á Gamla Garði með viðbyggingu og hugsanlegri nýtingu Stapa sem stúdentaíbúða, samkvæmt uppdr. Andrúms arkitekta ehf. dags. 15. febrúar 2019. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar íslands dags. 15. apríl 2019 og hljóðvistarskýrsla Verkfræðistofunnar Eflu dags. 15. febrúar 2019. Tillagan var auglýst frá 13. maí 2019 til og með 24. júní 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðfinna Guðmundsdóttir dags. 19. júní 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra .
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.