skemma á baklóð
Guðrúnartún 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 604
7. október, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lagt fram bréf T.ark arkitekta ehf., dags. 30. ágúst 2016, þar sem óskað er eftir framlengingu á samning sem gerður var 29. janúar 2013 við Reykjavíkurborg um niðurrif á skemmu á baklóð nr. 8 við Guðrúnartún. Óskað er eftir að skemman fái að standa næstu 8-10 árin. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Erindið er framsent til embættis byggingarfulltrúans í Reykjavík til afgreiðslu.