breyting á skilmálum deiliskipulags
Borgartún 32
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 673
16. mars, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. febrúar 2018 var lögð fram umsókn Rúnars Haukssonar f.h. Borgartúns 32 mótt. 12. desember 2017 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags fyrir lóð nr. 32 við Borgartún. Í breytingunni felst að byggingarmagn á lóð breytist, sökklar vesturhluta eldra húss undir plötu 1. hæðar breytast í geymslusvæði í kjallara og breyting verður á nýtingarhlutfalli lóðar, samkvæmt tillögu Teiknistofu Garðars Halldórssonar, húsameistara dags. 8. desember 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

105 Reykjavík
Landnúmer: 102917 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007635