Hækka hús - endurnýjun á byggingarleyfi BN053130
Norðurstígur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 590
24. júní, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. mars 2016 var lögð fram fyrirspurn THG arkitekta ehf. , mótt. 17. febrúar 2016, varðandi hækkun hússins á lóð nr. 3 við Norðurstíg um eina hæð. Á hæðinni yrði stúdíóíbúð og stórar þaksvalir, samkvæmt uppdr. THG arkitekta ehf. , dags. 14. febrúar 2016. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 7. apríl 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. júní 2016.
Svar

Jákvætt með skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. júní 2016.