breyting á deiliskipulagi
Vesturbæjarsundlaug
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 752
22. nóvember, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 21. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar, lóð nr. 54 við Hofsvallagötu. Í breytingunni felst að komið er fyrir hundagerði á lóðinni, samkvæmt uppdr. Eflu dags. 1. nóvember 2019.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.