breyting á deiliskipulagi
Starmýri 2
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 760
31. janúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn PKdM Arkitekta ehf. dags. 18. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Safamýri/Álftamýri vegna lóðar nr. 2 við Starmýri. Í breytingunni felst að hækka hús nr. 2a um tvær hæðir frá núverandi ástandi og bæta við byggingarreit til vesturs fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi sem snýr að Álftamýri. Breytingin gerir ráð fyrir að á lóðinni verði heimild fyrir íbúðir, verslunar- og þjónustustarfsemi og aðra atvinnustarfsemi sem samræmast notkunarskilgreiningum í Aðalskipulagi Reykjavíkur. Auk þess er gert ráð fyrir breytingum á lóð og nýjum bílastæðaskilmálum í samræmi við áherslur Aðalskipulags, samkvæmt uppdr. PKdM Arkitekta ehf. dags. 12. september 2019, br. 13. nóvember 2019. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: 11 íbúar að Álftamýri 61, 63, 65, 67, 69, 71, 73 og 75 dags. 27. janúar 2020, Ragnheiður Bragadóttir f.h. íbúa í Starmýri 6 dags. 29. janúar 2020, Erla Hafrún Guðjónsdóttir dags. 29. janúar 2020 og Guðmundur B. Ólafsson f.h. eiganda og íbúa Starmýri 4 og 8 dags. 29. janúar 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103700 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092867