Breyting á notkun
Suðurgata 12
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 683
1. júní, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. maí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. maí 2018 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja bílskúr, mhl.02, í breyttri mynd ásamt því að breyta notkun húsnæðis úr læknastöð í skrifstofur í húsi á lóð nr. 12 við Suðurgötu. Erindi var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júní 2018.
Nýbygging mhl. 02: 78,0 ferm., 206,7 rúmm. Minnisblað Eflu um brunahönnun dags. 19.02.2018 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júní 2018. Gera þarf breytingu á deiliskipulagi.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101202 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021958