(fsp) breyting á notkun rýmis á jarðhæð
Skipholt 15
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 480
21. febrúar, 2014
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi verslunarrýmis 0105 og starfrækja þar gististað í tengslum við gistiheimili sem samþykkt var 21. janúar 2014 í húsinu á lóðinni nr. 15 við Skipholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2014.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2014