breyting á deiliskipulagi
Spöngin eining G, Spöngin 3-5/Móavegur 2 og 4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 714
1. febrúar, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019 var lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. dags. 14. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingu G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að koma fyrir djúpgámum á lóð í stað sorpskýla og hækka hámarkshæð hjólaskýla úr 3,0 m. í 4,5 m., samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 13. nóvember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Lögð fram leiðrétt bókun frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. janúar 2019. Rétt bókun er:
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.