Lækka lóð
Vagnhöfði 7
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 732
14. júní, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn Arkís arkitekta ehf. dags. 19. mars 2019 ásamt bréfi dags. 20. desember 2018 um breytingu á aðkomu á lóð nr. 7 við Vagnhöfða frá Dverghöfða, koma fyrir stoðvegg við Dverghöfða þannig að hægt sé að lækka núverandi plan um ca. 1,9 m. frá núverandi fyrirkomulagi, aðlaga aðkomu að húsi í norður og lækka lóð þannig að hægt sé að nýta neðri hæð fyrir verslun og þjónustu. Einnig er lagt fram samkomulag eigenda lóðar við Vagnhöfða 7 við Veitur dags. 5. júní 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110633 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025300