Lækka lóð
Vagnhöfði 7
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 765
13. mars, 2020
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. mars 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að lækka yfirborð lóðar og koma fyrir stoðveggjum og fallvörnum á lóðarmörkum, skipta kjallara upp í 6 rýmiseiningar og bæta við sex nýjum iðnaðarhurðum með innbyggðum inngangshurðum á norðurhlið iðnaðarhúss, mhl.02, á lóð nr. 7 við Vagnhöfða, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 17. febrúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Erindi fylgir yfirlýsing burðarþolshönnuðar dags. 13. febrúar 2020, bréf hönnuðar dags. 17. febrúar 2020, samþykki lóðarhafa undirritað 20. febrúar 2020, hluti úr mæliblaði 4.062.3 dags. 15. júlí 2019, samkomulag milli lóðarhafa og Veitna dags. 5. júní 2019 og niðurstöður brunavarna dags. 13. febrúar 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110633 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025300