byggingarreitur fyrir niðurgrafna sorpgeymslu
Laugavegur 20-20A
Síðast Synjað á fundi fyrir 7 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 544
26. júní, 2015
Synjað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að leysa sorplosunarvanda með tveim niðurgröfnum sorpgeymslum í gangstétt fyrir framan hús á lóðum nr. 20 og 20A við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar Orkuveitu Reykjavíkur og Samgöngustjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra, dags. 18. júní 2015 og Orkuveitu Reykjavíkur dags. 19. júní 2015 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2015.
Meðfylgjandi eru bréf Laugaverks dags. 17. maí, 5.12. 2015, 12.7. 2014, tölvupóstur byggingarfulltrúa dags. 16.3. 2015, bréf skipulagsfulltrúa dags. 18.5. 2015 og 18.1. 2012, tölvupóstar dags, 24.2. 2012, 29.6. 2011, 21.9. 2011, 19.5. 2015.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. júní 2015.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101419 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017517