breyting á deiliskipulagi
Bústaðavegur 151-153
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 760
31. janúar, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Bústaðavegar 151-153. Í breytingunni felst m.a. að skipulagssvæðið stækkar til norðurs inn á svæði við lóðarmörk Ásenda og afreinar frá Miklubraut að Reykjanesbraut, uppsetningu hljóðveggs meðfram afrein/aðrein akandi umferðar við gatnamót Miklubrautar og Reykjanesbrautar, lega göngu- og hjólastígs norðan hitaveitustokks og vestan lóðar við Bústaðaveg 151D breytist og lega göngu- og hjólastígs breikkar og hækkar í landi milli eystri lóðarmarka Ásenda og afreinar/aðreinar milli Miklubrautar og Reykjanesbrautar vegna háspennurafstrengs sem liggur í jörðu undir núverandi stíg, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta og Landslags dags. 23. janúar 2020. Einnig eru felldar burt tvær settjarnir (settjörn 1 og settjörn 2) vegna óhentugrar hæðarlegu lands og skerpt á skilmálum vegna blágrænna ofanvatnslausna innan lóða í formi regnbeða. Jafnframt er lagt fram fylgiskjal með þremur sneiðmyndum í hljóðvegg og lóðir Ásenda nr. 1, 3 og 5 dags. 29. janúar 2020, hljóðvistarskýrsla Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. dags. í febrúar 2005 og hljóðkort (dynlínukort) Mannvits dags. í nóvember 2019.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108439 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008981