Hótel
Háteigsvegur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 573
12. febrúar, 2016
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Bakkastaða eignarhalsfélags ehf. dags. 21. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.244.2, Egilsborgarreits, vegna lóðanna nr. 1 og 3 við Háteigsveg. Í breytingunni felst að heimilt er að hækka að hluta núverandi byggingar Háteigsvegar 1 um eina hæð, byggja einnar hæðar verslunarhúsnæði á norðurhluta lóðar með kjallara. Skilmálar eru settir um uppbyggingu og kvaðir um holræsi og graftarrétt á norðurmörkum lóðanna nr. 1 og 3 falla út, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 1. júní 2015. Einnig er lagt fram bréf skipulagsfulltrúa til umsækjanda dags. 3. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. apríl 2015. Tillagan var auglýst frá 27. júlí 2015 til og með 16. september 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún B. Birgisdóttir ásamt beiðni um framlengingu á fresti, dags. 7. september 2015, Kristján Andrésson og Hrafnhildur Einarsdóttir, dags. 7. september 2015, Þorkell Pétursson dags. 7. september 2015, stjórn húsf. Rauðarárstíg 41, dags. 7. september 2015, Elfa Sif Logadóttir og Marinó A. Jónsson, dags. 7. september 2015, Guðrún Helga Magnúsdóttir, dags. 7. september 2015, Hverfisráð Hlíða dags. 7. september 2015, Þrúður Helgadóttir, dags. 9. september 2015 og Svava María Atladóttir dags. 9. og 10. september 2015, húsfélag Rauðarárstíg 41 dags. 14. september 2015, Ólafur Torfason f.h. Íslandshótel hf. dags. 15. september 2015 og eigendur Háteigsvegi 2 og 4 ásamt Rauðarárstíg 41, dags. 16. september 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. nóvember 2015, ásamt breyttum uppdrætti Teiknistofunnar Traðar dags. 15. 2016. Jafnframt er lagður fram tölvupóstur Elínar R. Þorsteinsdóttur, dags. 8. febrúar 2016 þar sem umsókn er dregin til baka.
Svar

Umsókn dregin til baka, sbr. tölvupóst, dags. 8. febrúar 2016.