Hótel
Háteigsvegur 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 510
3. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. september 2014 var lögð fram fyrirspurn Bakkastaða eignarhaldsfélags ehf. dags. 29. ágúst 2014 varðandi stækkun á jarðhæð og kjallara hússins á lóðinni nr. 1 við Háteigsveg ásamt hækkun hússins um eina hæð og byggja kálf til norðurs meðfram Rauðarárstíg, samkvæmt tillögu Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. ágúst 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2014.
Svar

Jákvætt með þeim skilyrðum og leiðbeiningum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2014.