(fsp) breyting á notkun
Grensásvegur 12
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 591
1. júlí, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa dags. 20. maí 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi að hækka og breyta þaki og fjölga herbergjum á 2. hæð í bakhúsi, mhl. 02, gististaður fl. 2, tegund B, gistiheimili, á lóð nr. 12 við Grensásveg. Erindi var samþykkt í grenndarkynningu og að lokinni grenndarkynningu er erindið lagt fram að nýju. Grenndarkynning stóð frá 30. maí til 28. júní 2016. Engar athugasemdir bárust.

Erindi fylgir samþykki meðeigenda í mhl. 01 áritað á uppdrátt.
Stækkun: 116 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.