breyting á skilmálum deiliskipulags
Faxafen 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 699
21. september, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn THG arkitekta ehf. dags. 5. júlí 2018 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Skeifan - Fenin vegna lóðarinnar nr. 5 við Faxafen. Í breytingunni felst að heimilt er að gera smávægilegar breytingar á byggingum á lóðinni s.s. að gera svalir og aðlaga útlit og innra fyrirkomulag að nýrri starfsemi, svo fremri sem hún samræmist ákvæðum gildandi deiliskipulags um starfsemi á lóðinni, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 5. júlí 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. september 2018 til og með 10. október 2018 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst þann 17. september 2018 er erindi nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

108 Reykjavík
Landnúmer: 105673 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009687