Flytja hús og nýbygging
Bergstaðastræti 27 og 29
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 742
6. september, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að flytja friðað timburhús um lengd sína til suðurs á nýjan steinsteyptan kjallara, endurgera og innrétta tvær íbúðir og til að rífa, endurbyggja og stækka steinhús sem fyrir er á lóð og innrétta átta íbúðir á lóð nr. 27 við Bergstaðastræti, samkvæmt uppdráttum Glámu-Kím dags. 26. febrúar 2019. Einnig eru lagðir fram skýringaruppdrættir Glámu-Kím dags. 14. mars 2019, skuggavarpsuppdrættir Glámu-Kím dags. 28. mars 2019 og götumyndir ódags. Erindi var grenndarkynnt frá 15. apríl 2019 til og með 13. maí 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Steinunn Sveinbjarnardóttir, Helga Völundardóttir, Mímir Völundarson og Lind Völundardóttir dags. 4. maí 2019, Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir og Hildur Heimisdóttir dags. 5. maí 2019, Ásdís Thoroddsen dags. 11. maí 2019, Sigríður Halldórsdóttir dags. 11. maí 2019, Steinunn Stefánsdóttir dags. 12. maí 2019, Anna Lára Lárusdóttir dags. 13. maí 2019, Katrín Rós Gýmisdóttir f.h. eigenda að Bergstaðastræti 28 dags. 13. maí 2019, Katrín Rós Gýmisdóttir f.h. Ránarhóls ehf. dags. 13. maí 2019, Baldur Héðinsson og Anna Helga Jónsdóttir dags. 13. maí 2019 og Húseigendafélagið f.h. Telmu Huld Jóhannesdóttur dags. 13. maí 2019. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 25. febrúar 2019, greinargerð um hita- og rakaástand, minnisblað um burðarvirki og lagnir dags. 22. febrúar 2019 og minnisblað um hljóðvist dags. 22. febrúar 2019. Eftir stækkun, mhl. 01, A-rými: 172,3 ferm., 514,8 rúmm. Mhl. 02, A-rými: 640,1 ferm., 1.946,2 rúmm. B-rými: 17,7 ferm., 49,6 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102073 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007042