breyting á deiliskipulagi vegna boltagerðis
Selásskóli, Selásbraut 109
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 336
4. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 18. nóvember 2010 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður-Selás vegna lóðarinnar nr. 109 við Selásbraut. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir boltagerði við Selásskóla samkvæmt uppdrætti dags. 17. nóvember 2010. Auglýsingin stóð yfir frá 15. desember 2010 til og með 28. janúar 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ólafur Hrannar Eyþórsson dags. 27. janúar 2011, Guðjón D. Haraldsson f.h. foreldra og íbúa við Selásskóla dags. 28. og 31. janúar 2011 meðfylgjandi bréfinu dags. 31. janúar eru undirskriftalisti íbúa sem næst búa við fyrirhugaðan völl, Örn Halldórsson skólastjóri Selásskóla dags. 28. janúar 2011 og Þórarinn Þórhallsson dags. 28. janúar 2011. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 3. febrúar 2011.
Svar

Vísað til skipulagsráðs.