(fsp) svalir
Skógarhlíð 22
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 823
4. júní, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. maí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að koma fyrir 4 íbúðum, endurbyggja tröppur á norðausturhlið, og setja opnanlega glugga og svalir á á 2. hæð Þóroddsstaða, iðnaðar- og fjölbýlishúss á lóð nr. 22 við Skógarhlíð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. janúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2021. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2021.

105 Reykjavík
Landnúmer: 178936 → skrá.is
Hnitnúmer: 10083856