framkvæmdaleyfi
Víðidalur, Fákur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 607
28. október, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Hestamannafélagsins Fáks, mótt. 29. ágúst 2016, um framkvæmdaleyfi vegna gerðar manar (áhorfendasvæði) vestan megin við Hvammsvöllinn í Víðidal og upphitunarvöll við stóra hringinn (ská á móti Brekkuvellinum). Einnig er lögð fram teikning verkfræðistofunnar EFLU, dags. í september 2011, bréf Jóns F. Hanssonar f.h. Hestamannafélagsins Fáks, dags. 15. ágúst 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2016 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014