breyting á skilmálum deiliskipulags
Sigtún 38
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 554
18. september, 2015
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Íslandshótels hf. , dags. 28. apríl 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 38 og 40 við Sigtún. Í breytingunni felst að lóð nr. 38 er stækkuð og heimiluð er aukin uppbygging hótels á henni og lóð nr. 40 er minnkuð og heimiluð er uppbygging íbúðarhúsa í sex byggingum á henni í stað gróðurskála. Skrifaðir eru nýir sérskilmálar fyrir báðar lóðirnar miðað við breytta uppbyggingu. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Atelier Arkitekta slf., dags. apríl 2015. Tillagan var auglýst frá 29. maí 2015 til og með 10. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Helga Ágústsdóttir, dags. 3. júní 2015, Jón Viðar Gunnarsson, dags. 4. júní 2015 og Salvör Gissurardóttir, dags. 11. júní 2015, Halla Sif Guðlaugsdóttir, dags. 7. júlí 2015, Hildur Bjarnadóttir, dags. 7. júlí 2015, Hjörtur Þór Hauksson, dags. 7. júlí 2015, Anna Halldóra Þórðardóttir, dags. 7. júlí 2015, Þórhallur Jóhannesson, dags. 7. júlí 2015, Axel Eiríksson og Stefanía Sigurjónsdóttir, dags. 8. júlí 2015, Verkfræðingafélag Íslands Árni B. Björnsson, dags. 9. júlí 2015, Kristbjörn Helgason, dags. 9. júlí 2015, Málfríður Kristjánsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Elísabet Magnúsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Jesús Rodríguez, dags. 9. júlí 2015, Inga María Leifsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Jón Ágúst Eiríksson, dags. 9. júlí 2015, Sigrún Drífa Jónsdóttir og Árni Sören Ægisson, dags. 9. júlí 2015, Karl Frank Sigurðsson, dags. 9. júlí 2015, Svala Bryndís Jónsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Hjalti Þórisson og Guðrún Björk Tómsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Jón V. Gunnarsson, dags. 10. júlí 2015, undirskriftalisti 336 íbúa, dags. 9. júlí 2015, Bjarney Jónsdóttir og Guðrún Einarsdóttir, dags. 9. júlí 2015, íbúasamtök Laugardals dags. 10. júlí 2015, Haukur Karlsson og Áslaug Karlsdóttir, dags. 10. júlí 2015, Ásgeir Björgvinsson og Þórhildur Þórhallsdóttir, dags. 13. júlí 2015, Ásgeir Jónsson og Gerður Bolladóttir, dags. 13. júlí 2015, Birkir Fjalar Viðarsson, dags. 13. júlí 2015, Heiðlóa Ásvaldsdóttir, dags. 13. júlí 2015 og Landssamtök hjólreiðarmanna, dags. 13. júlí 2015. Einnig er lögð fram umsögn hverfisráðs Laugardals, dags. 23. júní 2015 og umsögn/svar skóla og frístundasviðs, ódags.
Svar

Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.