breyting á deiliskipulagi
Álftaland 15-17
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 627
31. mars, 2017
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar, mótt. 27. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Eyrarlands vegna lóðarinnar nr. 15-17 við Álftaland. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit við suðvesturgafl hússins nr. 15 svo unnt verði að koma fyrir sólstofu á einni hæð og að gerður er nýr byggingarreitur norðaustan við húsið nr. 17 fyrir einnar hæðar geymsluhús, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf., dags. 23. mars 2017.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108742 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006593