Viðbygging - Blóðbankinn
Snorrabraut 60
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 833
20. ágúst, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. ágúst 2021 var lögð fram umsókn Helga Konráðs Thoroddsen, dags. 25. júní 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 60 við Snorrabraut. Í breytingunni felst að nýr byggingarreitur kemur fyrir einnar hæðar viðbyggingu við bakinngang á vesturhlið núverandi byggingar, nýr afgirtur köfnunarefnistankur kemur við norðurgafl núverandi húss og tvö bílastæði með afkomu um Egilsgötu eru talin með til bílastæðabókhalds, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta dags. 22. júní 2021, br. 16. ágúst 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Egilsgötu 3 og Snorrabraut 58.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. sbr. gr. 12. í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.