Niðurrif - 95 og 97
Laugavegur 95-99
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 580
8. apríl, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Ólafar G. Valdimarsdóttur f.h. Rita og bóka ehf., mótt. 5. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.1 vegna lóðarinnar nr. 95-99 við Laugaveg. Í breytingunni felst að á lóðinni verði heimil verslunar- og þjónustustarfstarfsemi í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 þ.m.t. almenn skrifstofu starfsemi og hótelþjónusta fyrir gististað í flokki V, en auk þess er heimilt að á efri hæðum verði starfsemi gististaðar, skrifstofur eða íbúðir. Jafnframt eru heildarskilmálar settir fyrir lóðina auk þess að B og C rýmum er bætt inn í heildarflatarmál, heimilt verður að fullnýta gildandi deiliskipulagheimildir við Laugaveg auk þess að heimilt verður að stækka 4. hæð yfir bakbyggingu við Laugaveg allt að 1,5 metra frá útvegg o.fl., samkvæmt uppdr. Plan 21 ehf., dags. 5. apríl 2016.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Leggja þarf fram skuggavarp og gera þarf grein fyrir skýringaruppdrætti í greinargerð í deiliskipulagsuppdrætti
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.

101 Reykjavík
Landnúmer: 210318 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018228