Niðurrif - 95 og 97
Laugavegur 95-99
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 576
4. mars, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. febrúar 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. febrúar 2016 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja inndregna 4. hæð Laugavegsmegin og innrétta gististað í flokki V, með 101 herbergjum og verslunum og veitingarýmum á jarðhæð í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 95-99 við Laugaveg. Einnig er lagt fram minnisblað Björns Stefáns Hallssonar arkitekts, dags. 18. febrúar 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. mars 2016.
Erindi fylgir umboð Péturs Guðmundssonar dags. 28. janúar 2016.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. mars 2016, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 210318 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018228