(fsp) stækkun húss
Laugavegur 20B
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 724
12. apríl, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. apríl 2019 var lögð fram umsókn Páls V. Bjarnasonar dags. 22. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5, Laugavegs- og Skólavörðustígsreitir, vegna lóðarinnar nr. 20B við Laugaveg. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar, reisa einnar hæðar viðbyggingu á bakhlið hússins með þaksvölum og gera inndregna þakhæð, tengibyggingu á millibyggingu milli hornhúss og risshúss, með kvisti til suðurs úr mænisþaki sem veitir aðgang að þaksvölum sem verða yfir endahúsinu, samkvæmt uppdr. P ARK teiknistofu sf. dags. 22. mars 2019. Einnig er lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands dags. 12. nóvember 2018 og 25. mars 2019 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 5. desember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1231/2018.