breyting á deiliskipulagi
Holtavegur 23, Langholtsskóli
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 656
3. nóvember, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 18. júlí 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Langholtsskóla að Holtavegi 23. Í breytingunni felst að byggingarreitur í suðvesturhluta lóðar er færður í norðausturhluta lóðar og minnkaður, samkvæmt uppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. júlí 2017. Tillagan var auglýst frá 15. september til og með 27. október 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar