(fsp) - Bakarí
Laugavegur 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 520
12. desember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2014 var lögð fram fyrirspurn Arkitektur.is dags. 1. desember 2014 varðandi stækkun þaksvala á bakhúsi lóðarinnar nr. 8 við Laugaveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2014.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað , í samræmi við erindið með þeim fyrirvörum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2014. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101404 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017503