breyting á deiliskipulagi
Mjölnisholt 4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar f.h. Arctic Tours ehf. dags. 23. janúar 2018, varðandi breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 4, 6, 8 og 10 við Mjölnisholt. Í umsókn um breytingunni fólst að hækka húsin um 46-60 cm, sameina lóðirnar nr. 6 og 8 og byggja sameiginlegan stigagang/lyftuhús, gera niðurgrafna bílgeymslu á lóðunum nr. 6, 8 og 10, útbúa bílastæði fyrir rafmagnsbíl í bakgarði lóðar nr. 4 og geymsluskúr á baklóð lóðar nr. 6, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf. dags. 19. janúar 2018, síðast breytt 23. mars 2018. Í breyttri tillögu felst að leiðrétta mænishæðir húsanna þannig að rishæðir nýtist fyrir íbúðir, mænishæðir hækka um 0,5 -2,3 m. Einnig bætist við heimild fyrir 35 m2 geymsluskúr á lóðinni nr . 6 og leiðréttar eru upplýsingar um byggingarmagn geymsluskúra á lóðum nr. 8 og 10. Einnig lagt fram bréf Kjartans Ingvarssonar dags 14. júní 2018 og breyttur uppdráttur K.J. hönnunar ehf. dags 13. júní 2018 þar sem óskað er eftir afstöðu til breyttrar tillögu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2018. Jafnframt er lagt fram bréf Kjartans Ingvarssonar f.h. Arctic Tours ehf. dags. 16. nóvember 2018 um endurupptöku á ákvörðun skipulagsfulltrúa frá 29. júní 2018 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. janúar 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. febrúar 2019 til og með 4. mars 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hrönn Vilhelmsdóttir og Þórólfur Antonsson dags. 25. febrúar 2019 og Páll V. Bjarnason f.h. RA 5 ehf. dags. 1. mars 2019. Tillagan var grenndarkynnt að nýju frá 17. apríl 2019 til og með 15. maí 2019. Engar athugasemdir bárust við seinni grenndarkynningunni. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. maí 2019 og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103007 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022515