Endurinnrétta 2.hæð - svalir suðurhlið
Síðumúli 32
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 658
17. nóvember, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. nóvember 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að setja svalir á suðurhlið og innrétta dagvist fyrir aldraða á annarri hæð starfsemi í húsi á lóð nr. 32 við Síðumúla. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Síðumúla 34.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.