breyting á deiliskipulagi
Lækjargata 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 744
20. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Björns Skaftasonar dags. 13. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Lækjargötu 10 og 12, Vonarstræti 4 og 4B og Skólabrú 2 vegna lóðarinnar nr. 12. við Lækjargötu. Breytingin á einungis við um húshluta að inngarði vegna Lækjargötu 12. Í breytingunni felst að heimilt er að byggja einnar hæðar viðbyggingu er tengist við aðalhæð hússins, stækka veitingaaðstöðu á 1. hæð og nýta þak viðbyggingar sem svalir fyrir einstaka herbergi á 2. hæð, samkvæmt uppdr. Atelier Arkitekta slf. dags. 11. júní 2019, síðast breytt 8. júlí 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. ágúst 2019 til og með 12. september 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.