Byggja yfir núverandi svalir
Langholtsvegur 115
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 827
2. júlí, 2021
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. maí 2021 var lögð fram umsókn Hildar Steinþórsdóttur dags. 10. maí 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Langholtsvegar og Drekavogar vegna lóðarinnar nr. 115 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að gera svalalokun yfir svalir á 1. hæð hússins ásamt því að nýtingarhlutfall er leiðrétt, samkvæmt uppdr. Hildar Steinþórsdóttur arkitekts dags. 3. maí 2021. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa dags. 3.maí 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105096 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015782