breyting á skilmálum deiliskipulags
Suðurlandsbraut 4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 663
5. janúar, 2018
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Mænis Reykjavík ehf. , mótt. 18. október 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Ármúla, Vegmúla, Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 4-4A við Suðurlandsbraut. Breytingin varðar kvöð um bílastæði, samkvæmt tillögu Urban arkitekta ehf. , dags. 29. maí 2017, br. 12. október 2017. Einnig er lagt fram bréf umsækjanda, dags. 3. október 2017. Tillagan var auglýst frá 7. nóvember 2017 til og með 19. desember 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Páll V. Bjarnason f.h. Reginn atvinnuhúsnæði ehf. dags. 18. desember 2017 og S4 eignarhaldsfélag ásamt 3 fylgiskjölum, dags. 18. desember 2017.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103513 → skrá.is
Hnitnúmer: 10076703