breyting á deiliskipulagi
Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 684
8. júní, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. júní 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 31. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis, með síðari breytingum, vegna lóðarinnar nr. 24 við Kirkjuteig. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir færanlega kennslustofu ásamt tengigangi í gám sem notaður verður fyrir starfsfólk leikskólans. Byggingarreitur er staðsettur á lóð austan megin við núverandi færanlegar kennslustofur sem staðsettar eru norður af leikskólanum Hofi. Núverandi gögnustígur frá Hofteig inn á skólalóð verður að hluta til færður til austurs, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 31. maí 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.