(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 622
24. febrúar, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050485, um er að ræða stækkun tæknirýma í neðri kjallara, minni háttar breytingar á útliti og innra skipulagi allra hæða og stækkun 7. hæðar hótels á lóð nr. 2 við Austurbakka. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2017.
Erindi fylgja greinargerðir um algilda hönnun dags. 22. desember 2016, um eldvarnir dags. 22 desember 2016, um hljóðvist dags. 14. desember 2016 og um hávaðadreifingu frá hafnarstarfsemi í Reykjavík dags. í september 2015.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun, A-rými: xx ferm., xx rúmm. B-rými: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2017. Samræmist ekki deiliskipulagi.