(fsp) breyting skilmálum deiliskipulags
Austurbakki 2, Tónlistarhús
Síðast Synjað á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 666
26. janúar, 2018
Frestað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2018 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar f.h. Faxaflóahafna sf. mótt. 12. desember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að bætt verður við nýrri lóð með byggingarreit 14 á Faxagarði fyrir spenni- og rafdreifistöð auk vaktaðstöðu, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 13. nóvember 2017. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Frestað.
Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.